Contalgin

Skráða lyfið Contalgin er ófáanlegt í 5 mg og 10 mg styrkleika.

27. mars 2024

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráða lyfið Contalgin í undanþágulyfið MST Continus til 30. apríl 2024.

19. mars 2024

Skráða lyfið Contalgin er ófáanlegt í 5 mg og 10 mg styrkleika

Undanþágulyfið MST Continus 5 mg 60 stk. (vnr. 990441) hefur verið útvegað.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Contalgin í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 990441 MST Continus 5 mg 60 stk.


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Contalgin yfir í undanþágulyfið MST Continus gildir til 30. apríl 2024.

Undanþágulyfið er í enskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Napp Pharmaceutical Ltd. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 29. apríl 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat