Cotrim

Skráða lyfið er fáanlegt aftur.

29. febrúar 2024

Skráða lyfið Cotrim er fáanlegt aftur.

26. janúar 2024

Vegna skorts á skráða lyfinu Cotrim heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Cotrim 80/400 mg töflur í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 976201 CO-TRIMOXAZOLE 80/400 MG 28 TÖFLUR

Undanþágulyfið Co-Trimoxazole er í breskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Tillomed Laboratories Ltd.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Cotrim yfir í undanþágulyfið gildir til 1. mars 2024.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 29. febrúar 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat