Crinone 8% leggangahlaup

Skráða lyfið Crinone 8% leggangahlaup er ófáanlegt.

3. júlí 2024

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráða lyfið Crinone í undanþágulyfið Crinone til 8. ágúst 2024.

3. júní 2024

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráða lyfið Crinone í undanþágulyfið Crinone til 2. júlí 2024.

7. maí 2024

Markaðssetta lyfið Crinone 8% leggangahlaup er ófáanlegt. Lyfið er væntanlegt aftur í byrjun júní.

Undanþágulyfið Crinone Parlogis 8% leggangahlaup (vnr. 997091) hefur verið útvegað.

Vegna skorts á markaðssettu lyfi heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir markaðsetta lyfið Crinone 8% leggangahlaup í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 997091 Crinone Parlogis 8% leggangahlaup 15 stk.


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir ofangreint markaðssett lyf yfir í undanþágulyfið Crinone Parlogis gildir til 4. júní 2024.

Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins EMRA-MED Arzneimittel GmbH. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 3. júlí 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat