Þessi vefur er ekki lengur uppfærður – opinber vefur Lyfjastofnunar er island.is/s/lyfjastofnun

Decutan 10 mg

Markaðssetta lyfið Decutan 10 mg er ófáanlegt.

28. október 2026

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimilar Lyfjastofnun lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir markaðssetta lyfið Decutan 10 mg í undanþágulyfið Isogalen 10 mg.

Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Mikilvægt er að lyfjafræðingur fylgi gátlista lyfjafræðinga eins og gert er við afgreiðslu á markaðsetta lyfinu Decutan, þegar heimild þessi er nýtt. Einnig er mikilvægt að lyfjafræðingar upplýsi lyfjanotendur um mismunandi útlit lyfjanna, en undanþágulyfið er appelsínugult á meðan Decutan er ljósfjólublátt að lit.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi og sé í erlendum pakkningum þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 28. október 2026
Var efnið hjálplegt Já Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat