2. nóvember 2022
Skráða lyfið Depo-Provera 50 mg/ml er nú fáanlegt aftur.
14. júlí 2022
Undanþágulyfið Depo-Provera vnr. 990178 er fáanlegt hjá heildsölu og verður birt í lyfjaverðskrá sem tekur gildi 15.07.22.
Lyfjafræðingum í apótekum verður ekki heimilt að breyta lyfjaávísun læknis í undanþágulyfið, skv. 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, þar sem undanþágulyfið er ekki með markaðsleyfi innan EES.
16. júní 2022
Skráða lyfið Depo-Provera 50 mg/ml er ófáanlegt hjá heildsölu. Lyfið er væntanlegt aftur í lok september.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Verið er að vinna í að útvega undanþágulyf. Fréttin verður uppfærð.