Detrusitol Retard 2 mg

Markaðssetta lyfið Detrusitol Retard er ófáanlegt.

27. nóvember 2024

Vegna skorts á markaðssetta lyfinu Detrusitol Retard 2 mg heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Detrusitol Retard í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 999485 Mariosea XL 2 mg 28 stk.

Undanþágulyfið Mariosea er í breskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Teva UK Limited. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Detrusitol Retard í undanþágulyfið Mariosea gildir til 19. desember 2024.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi og sé í erlendum pakkningum þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 27. nóvember 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat