Doxylin 100 mg og Doxycyklin EQL Pharma 100 mg

Skráða lyfið Doxylin 100 mg 10 stk. er nú fáanlegt aftur.

26. maí 2023

Skráða lyfið Doxylin 100 mg 10 stk. er nú fáanlegt aftur.

22. maí 2023

Skráðu lyfin Doxylin og Doxycyklin EQL Pharma eru enn ófáanleg. Doxylin 100 mg 10 stk. er væntanlegt í vikulok.

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Doxylin og Doxycyklin EQL Pharma í undanþágulyfið Doxycyklin EQL Pharma til 26. maí 2023.

9. maí 2023

Skráðu lyfin Doxylin 100 mg og Doxycyklin EQL Pharma eru ófáanleg. Undanþágulyf er fáanlegt í 10 stk. og 15 stk. pakkningum.

Vegna skorts á skráðu lyfjunum heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Doxylin og Doxycyklin EQL Pharma í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 992752 Doxycyklin EQL Pharma 100 mg 10 stk.
  • Vnr. 992778 Doxycyklin EQL Pharma 100 mg 15 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Doxylin 100 mg og Doxycyklin EQL Pharma 100 mg yfir í ofangreind undanþágulyf gildir til 22. maí 2023.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Undanþágulyfið Doxycyklin EQL Pharma 100 mg er í sænskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins EQL Pharma AB.

Síðast uppfært: 26. maí 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat