Dymista Nefúði 137 mcg / 50 mcg/skammt

Skráða lyfið Dymista er nú fáanlegt aftur.

6. mars 2023

Skráða lyfið Dymista er nú fáanlegt aftur.

28. febrúar 2023

Frekari tafir verða á sendingu af Dymista nefúða 137 mcg/ 50 mcg/skammt sem nú er væntanlegt 6. mars nk.

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum til að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráð Dymista Nefúði 137 mcg / 50 mcg/skammt í undanþágulyfið Dymista 137 mcg / 50 mcg/skammt til 6. mars 2023.

Lyfjastofnun minnir á að heimildin gildir aðeins fyrir undanþágulyfið Dymista 137 mcg / 50 mcg/skammt vnr. 976194.

26. janúar 2023

Skráða lyfið Dymista Nefúði 137 mcg / 50 mcg/skammt er ófáanlegt hjá heildsölu.

Undanþágulyfið Dymista 137 mcg / 50 mcg/skammt (vnr. 976194) er væntanlegt hjá heildsölu í þessari viku.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráðu Dymista í ofangreint undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir skráð Dymista yfir í undanþágulyfið gildir til 1. mars 2023.

Undanþágulyfið er í dönskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Viatris ApS. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 6. mars 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat