20. desember 2024
Vegna skorts á markaðssetta lyfinu Efient 5 mg heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Efient 5 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:
- Vnr. 999401 Efient 5 mg 28 stk.
Undanþágulyfið Efient 5 mg er í dönskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Substipharm. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.
Heimild til að breyta lyfjaávísun í undanþágulyfið Efient 5 mg gildir til 7. janúar 2025.
Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi og sé í erlendum pakkningum þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.