10. ágúst 2022
EpiPen Jr. 150 mcg er nú fáanlegt aftur.
22. júlí 2022
Skráða lyfið EpiPen Jr. 150 mcg er ófáanlegt hjá heildsölu. Lyfið er væntanlegt aftur í lok ágúst.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Skráða lyfið Jext 150 mcg er fáanlegt. Jext hefur sambærilega ábendingu og inniheldur sama virka efni og EpiPen Jr.
Ráð til lyfjanotenda:
Lyfjanotendum er bent á að fá lyfjaávísun hjá lækni fyrir Jext 150 mcg. Athugið að skoða vel notkunarleiðbeiningar fyrir Jext þar sem lyfjapenninn er ólíkur EpiPen Jr.