Skráða lyfið Ery-Max 250mg sýruþolin hylki 40 stk er hætt í framleiðslu og er nú ófáanlegt hjá heildsala. Einhverjar birgðir eru enn til í apótekum.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Enn eru til einhverjar birgðir af lyfinu í apótekum. Til að bregðast við skorti hefur verið útvegað eftirfarandi undanþágulyf sem inniheldur sama virka efni og Ery-Max. Lyfið er væntanlegt í sölu hjá Parlogis um miðjan júlí.
Vnr. 986432 Eritromicina Estedi 250mg hylki 40stk.
Ráð til lyfjanotenda:
Enn eru til einhverjar birgðir af lyfinu í apótekum landsins. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér í apótek og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.