4. nóvember 2020
Til þess að bregðast við skorti hefur Distica útvegað eftirfarandi undanþágulyf, sem er væntanlegt í sölu í lok vikunnar:
984519 Estracyt 140 mg hörð hylki 100 stk.
21. október 2020
Skráða krabbameinslyfiið Estracyt 140 mg hörð hylki, 100 stk er nú ófáanlegt hjá heildsala og verður afskráð.
Ráð til lækna:
Hafa skal samband við lyfjaheildsölur ef læknir metur að nauðsynlegt sé að kanna hvort hægt sé að útvega undanþágulyf.
Ráð til lyfjanotenda:
Ef nauðsynlegt reynist að stöðva eða skipta um lyfjameðferð er mikilvægt að það sé gert í samráði við lækni.