Fampyra 10 mg

Öll markaðsettu lyfin sem innihalda fampridinum eru ófáanleg.

16. janúar 2025

Vegna skorts á markaðssettu lyfjunum:

Fampyra 10 mg 28 stk. vnr. 056308
Fampyra 10 mg 56 stk. vnr. 086142
Fampyra 10 mg 56 stk. (Heilsa) vnr. 141313
Fampyra 10 mg 56 stk. (Lyfjaver) vnr. 179470

heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir markaðssettu lyfin í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 999691 Fampyra 10 mg 56 stk. 

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir markaðssett lyf yfir í ofangreint undanþágulyf gildir til 31. janúar 2025.

Undanþágulyfið er frá Svíþjóð og er markaðsleyfishafi lyfsins Acorda Therapeutics Ireland limited. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 16. janúar 2025
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat