Galantamin STADA 16 mg

Skráða lyfið Galantamin STADA 16 mg er ófáanlegt en undanþágulyfið hefur verið útvegað.

14. október

Vegna áframhaldandi skorts á skráða lyfinu Galantamin STADA 16 mg hefur heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Galantamin STADA 16 mg yfir í Galantamin-Parlogis verið framlengd til 30. nóvember 2022.

24. ágúst

Skráða lyfið Galantamin STADA 16 mg er ófáanlegt hjá heildsölu en búið er að útvega undanþágulyfið Galantamin-Parlogis 16 mg.

Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Vegna skorts á skráða lyfinu Galatamin STADA 16 mg forðahylki, heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Galantamin STADA 16 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 990251 Galantamin-Parlogis 16 mg


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Galantamin STADA 16 mg yfir í Galantamin-Parlogis gildir til 17. október 2022.

Tilmæli eru til lyfjafræðinga að upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Neuraxpharm Arzneimittel GmbH. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Síðast uppfært: 14. október 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat