Haiprex 1 g

Skráða lyfið Haiprex 1 g er fáanlegt aftur.

15. september 2023

Skráða lyfið Haiprex er fáanlegt aftur.

31. ágúst 2023

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráða lyfið Haiprex í samnefnt undanþágulyf, vnr. 994005, til 2. október 2023.

20. júlí 2023

Skráða lyfið Haiprex 1 g 100 stk. er ófáanlegt en undanþágulyf með sama heiti er fáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Haiprex 1 g í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 994005 Haiprex 1 g 100 stk.


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Haiprex 1 g yfir í undanþágulyfið gildir til 1. september 2023.

Undanþágulyfið er í dönskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins er Viatris ApS. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 15. september 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat