8. febrúar 2023
Skráða lyfið Hjartamagnýl 75 mg er nú fáanlegt aftur.
23. janúar 2023
Seinkun hefur orðið á sendingu af Hjartamagnýl 75 mg 100 stk. Lyfið er nú væntanlegt í byrjun febrúar. Því hefur Lyfjastofnun ákveðið, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, að framlengja heimild lyfjafræðinga í apótekum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Hjartamagnýl í undanþágulyfið ASS Dexcel Protect til og með 7. febrúar.
17. janúar 2023
Skráða lyfið Hjartamagnýl 75 mg 100 stk. er ófáanlegt hjá heildsölu.
Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Hjartamagnýl 75 mg 100 stk. í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:
- Vnr. 992421 ASS Dexcel Protect 100 stk. sýruþolnar töflur
Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Hjartamagnýl í ASS Dexcel Protect gildir til 25. janúar.
Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og markaðsleyfishafi lyfsins er Dexcel Pharma GmbH.
Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.
Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi og sé í erlendum pakkningum þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.
Athugið að heimild þessi á einungis við þegar um lyfjaávísun læknis er að ræða. Ekki er heimilt að selja undanþágulyfið í lausasölu.