Imomed og Imovane

Skráða lyfið Imomed 7,5 mg er fáanlegt hjá heildsölu.

26. júlí 2023

Skráða lyfið Imomed 7,5 mg 30 stk. er fáanlegt aftur hjá heildsölunni Parlogis.

13. júlí 2023

Skráðu lyfin Imomed 7,5 mg 30 stk. og Imovane 7,5 mg, allar pakkningastærðir, eru enn ófáanleg hjá heildsölum.

Imomed 7,5 mg 30 stk. er væntanlegt í lok júlí en Imovane 7,5 mg um miðjan ágúst.

Vegna áframhaldandi skorts á skráðu lyfjunum framlengir Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Imomed eða Imovane í undanþágulyfin Zopiclon STADA og Zopiclone til 31. júlí 2023.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

27. júní 2023

Skráðu lyfin Imomed 7,5 mg 30 stk. og Imovane 7,5 mg, allar pakkningastærðir, eru enn ófáanleg hjá heildsölum.

Vegna áframhaldandi skorts á skráðu lyfjunum Imomed og Imovane framlengir Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Imomed eða Imovane í undanþágulyfið Zopiclon STADA til 26. júlí 2023.

Annað undanþágulyf er nú fáanlegt hjá heildsölu, Zopiclone 7,5 mg 28 stk. (vnr. 993685). Lyfjastofnun heimilar lyfjafræðingum í lyfjabúðum einnig að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Imomed eða Imovane í undanþágulyfið Zopiclone, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á. Heimildin gildir til 26. júlí 2023.

Undanþágulyfið Zopiclone 7,5 mg er í breskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins RIA Generics Ltd. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

2. júní 2023

Skráðu lyfin Imomed 7,5 mg 30 stk. og Imovane 7,5 mg, allar pakkningastærðir, eru ófáanlegar hjá heildsölum.

Undanþágulyfið Zopiclon STADA 7,5 mg 30 stk. (vnr. 993792) er fáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráðu lyfjunum Imomed og Imovane heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Imomed eða Imovane í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 993792 Zopiclon STADA 7,5 mg 30 stk.


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Imomed eða Imovane yfir í undanþágulyfið Zopiclon STADA gildir til 3. júlí 2023.

Undanþágulyfið er í dönskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins STADA Nordic Aps. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 26. júlí 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat