Kåvepenin

Allar skráðar pakkningar af Kåvepenin eru ófáanlegar.

1. september 2023

Allar skráðar pakkningar af Kåvepenin eru ófáanlegar, bæði mixtúrur og töflur.

Vonast er til að birgðir af lyfinu komi til landsins í viku 37.

31. júlí 2023

Skráða lyfið Kåvepenin Frukt 50 mg/ml er ófáanlegt. Sending af lyfinu kom til landsins en hún uppfyllti ekki gæðakröfur. Unnið er að því að fá nýja sendingu til landsins.

13. júní 2023

Skráða lyfið Kåvepenin Frukt 50 mg/ml er nú fáanlegt aftur.

26. maí 2023

Frekari tafir hafa orðið á sendingum af Kåvepenin 100 mg/ml og Kåvepenin Frukt 50 mg/ml. Kåvepenin 100 mg/ml er væntanlegt í ágúst en Kåvepenin Frukt í byrjun júlí.

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Kåvepenin mixtúru og Kåvepenin Frukt mixtúru í undanþágulyfið Infectocillin 500.000 ie/5 ml syrup (vnr.991647) til 5. júlí 2023.

Athugið að lyfið Infectocillin er ekki í sama styrkleika og skráðu lyfin og því þurfa lyfjafræðingar að umreikna og tryggja réttar skammtastærðir þegar heimild þessi er nýtt. Sjá frekari leiðbeiningar hér fyrir neðan.

28. apríl 2023

Tafir verða á sendingu af Kåvepenin 100 mg/ml og Kåvepenin Frukt 50 mg/ml. Kåvepenin 100 mg/ml er væntanlegt í júlí en Kåvepenin Frukt í lok maí.

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Kåvepenin mixtúru og Kåvepenin Frukt mixtúru í undanþágulyfið Infectocillin 500.000 ie/5 ml syrup (vnr.991647) til 1. júní 2023.

29. mars 2023

Skráðu lyfin Kåvepenin Frukt 50 mg/ml og Kåvepenin 100 mg/ml mixtúrukyrni eru aftur ófáanleg hjá heildsölu.

Undanþágulyfið Infectocillin 500.000 ie/5 ml syrup. (vnr. 991647) er fáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráðu lyfjunum heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Kåvepenin Frukt 50 mg/ml og Kåvepenin 100 mg/ml mixtúrukyrni í Infectocillin 500.000 ie/5 ml, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Kåvepenin Frukt 50 mg/ml og Kåvepenin 100 mg/ml mixtúrukyrni yfir í undanþágulyfið Infectocillin 500.000 ie/5 ml gildir til 1. maí 2023.

Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins INFECTOPHARM Arzneimittelund Consilium GmbH. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Athugið að lyfið Infectocillin er ekki í sama styrkleika og skráðu lyfin og því þurfa lyfjafræðingar að umreikna og tryggja réttar skammtastærðir þegar heimild þessi er nýtt. Sjá frekari leiðbeiningar hér fyrir neðan.

Ráð til lyfjafræðinga:

Infectocillin 500 mixtúra inniheldur fenoxýmetýlpenicillín 500.000 einingar í hverjum 5 ml, eða 100.000 einingar/ml.
Skráða lyfið Kåvepenin inniheldur ýmist 50 mg/ml eða 100 mg/ml af fenoxýmetýlpenicillin kalíum.

1 ml af Kåvepenin 100 mg/ml samsvarar 1,5 ml af Infectocillin 500 eða með öðrum orðum: 100 mg af Kåvepenin mixtúru (fenoxýmetýlpenicillin kalíum) samsvara u.þ.b. 150.000 einingum af Infectocillin mixtúru (fenoxýmetýlpenicillin). Dæmi: 2,5 ml af Kåvepenin 100 mg/ml samsvara 3,8 ml af Infectocillin.

1 ml af Kåvepenin 50 mg/ml samsvarar því 0,75 ml af Infectocillin 500. Dæmi: 5 ml af Kåvepenin 50 mg/ml samsvara 3,8 ml af Infectocillin.

Blöndun: Fyllið upp með sæfðu vatni að marklínunni á flöskunni. Hristið og bætið við vatni þannig að nái upp að marklínu. Geymsluþol Infectocillin mixtúru sem búið er að blanda er 10 dagar í ísskáp. Flöskuna skal hrista vel fyrir notkun.

Ráð til lækna:

Upplýsingar úr SmPC lyfsins frá þýska MLH:

5 ml (jafngildir 1 mæliskeið) af fullbúinni lausn inniheldur 500.000 einingar af fenoxýmetýlpenicillíni og 2,5 g af súkrósa sem svarar til 0,21 BE.
Eftirfarandi skammtaráðleggingar gilda nema annað sé mælt fyrir um:

Ungbörn allt að 10 kg:
1,25 ml 3 sinnum á dag (¼ mæliskeið 3 sinnum á dag) sem samsvarar 375.000 einingum á dag.

Ungbörn 10-20 kg:
2,5 ml 3 sinnum á dag (½ mæliskeið 3 sinnum á dag) sem samsvarar 750.000 einingum á dag.

Börn 20-30 kg:
5 ml 3 sinnum á dag (1 mæliskeið 3 sinnum á dag) sem samsvarar 1.500.000 einingum á dag.

Börn yfir 30 kg:
5–10 ml 3 sinnum á dag (1–2 mæliskeiðar 3 sinnum á dag) sem samsvarar 1.500.000–3.000.000 einingum á dag.

Athuga að ekki ruglist saman lík heiti: Infectocillin (fenoxýmethýlpenicillin), Infectomycin (erythromycin) og Infectomox (amoxicillin)

Síðast uppfært: 1. september 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat