Keflex 50 mg/ml mixtúrukyrni, dreifa

Skráða lyfið Keflex 50 mg/ml mixt.kyr. er ófáanlegt. Undanþágulyf er fáanlegt.

26. maí 2023

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Keflex 50 mg/ml í undanþágulyfið Keflex Parlogis 50 mg/ml til 1. júlí 2023.

24. mars 2023

Skráða lyfið Keflex 50 mg/ml mixtúra er ófáanlegt hjá heildsölu.

Undanþágulyf hefur verið útvegað og er væntanlegt í sölu á næstu dögum:

  • Vnr. 992984 Keflex Parlogis 50 mg/ml mixt.kyr.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráða lyfinu Keflex 50 mg/ml í ofangreint undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir skráð Keflex yfir í undanþágulyfið gildir til 1. júní 2023.

Undanþágulyfið er í norskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Eurocept International BV. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat