Klomipramin Mylan 25 mg

Skráða lyfið Klomipramin Mylan 25 mg er ófáanlegt. Undanþágulyf er fáanlegt.

28. september 2023

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráða lyfið Klomipramin Mylan 25 mg í undanþágulyfið Anafranil 25 mg til 1. nóvember 2023.

6. september 2023

Skráða lyfið Klomipramin Mylan 25 mg 100 stk. er ófáanlegt hjá heildsölu.

Undanþágulyfið Anafranil 25 mg 100 stk. (vnr. 971946) er fáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Klomipramin Mylan 25 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 971946 Anafranil 25 mg 100 stk.


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Klomipramin Mylan yfir í undanþágulyfið Anafranil gildir til 2. október 2023.

Undanþágulyfið verður fáanlegt bæði í norskum og þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Zr Pharma& Gmbh. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat