Lopress

Lopress 12,5 og 50 mg filmuhúðaðar töflur eru ófáanlegar

Markaðsleyfishafi Lopress hefur ákveðið að stöðva sölu og innkalla allar pakkningar frá apótekum tímabundið. Um er að ræða varúðarráðstöfun vegna þess að nýverið kom í ljós að lyfið uppfyllir ekki ströngustu gæðaskilyrði.

Leiðbeiningar til lyfjanotenda: Hugsanlegt er að þér verði boðið sambærilegt lyf með öðru heiti næst þegar þú leysir út lyfið í apóteki. Samheitalyf með sama virka innihaldsefni og Lopress eru fáanleg og lyfjafræðingar í apótekum geta veitt nánari upplýsingar. Fylgdu leiðbeiningum lyfsins sem þú færð hjá lækni og/eða lyfjafræðingi í apóteki. Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í fylgiseðli þess sem fylgir í pakkningu lyfsins.

Lyfjastofnun mun miðla frekari upplýsingum eftir þörfum.

Síðast uppfært: 16. nóvember 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat