Nefoxef og Telfast 120 mg

Skráða lyfið Telfast 120 mg töflur er fáanlegt.

10. ágúst 2023

Skráða lyfið Telfast 120 mg er fáanlegt aftur í heildsölu.

27. júní 2023

Vegna áframhaldandi skorts á skráðum lyfjum framlengir Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Nefoxef 120 mg og Telfast 120 mg í undanþágulyfið Telfast 120 mg til 10. ágúst 2023.

15. júní 2023

Skráðu lyfin Nefoxef 120 mg 30 stk. og Telfast 120 mg töflur 100 stk. eru ófáanleg hjá heildsölu.

Undanþágulyfið Telfast 120 mg 100 stk. (vnr. 993932) er fáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráðu lyfjunum heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Nefoxef og Telfast 120 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 993932 Telfast 120 mg 100 stk.


Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Nefoxef 120 mg 30 stk. og Telfast 120 mg töflur 100 stk. yfir í undanþágulyfið Telfast gildir til 3. júlí 2023.

Undanþágulyfið er í dönskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins HEALTHCARE INTERNATIONAL SAS. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Lyfjastofnun vekur athygli á því að þessi heimild á einungis við þegar um lyfjaávísun læknis er að ræða. Ekki er heimilt að afgreiða undanþágulyfið í lausasölu.

Síðast uppfært: 10. ágúst 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat