11. apríl 2022
Norgesic 35 mg/450 mg 100 stk. er nú fáanlegt aftur hjá heildsölu
24. mars 2022
Norgesic 35 mg/450 mg 30 stk. pakkning er nú einnig væntanleg í viku 14.
23. mars 2022
Norgesic 35 mg/450 mg 30 stk. pakkning kemur ekki þann 28. mars. Óvíst er hvenær von er á næstu sendingu. Norgesic 35 mg/450 mg 100 stk. pakkning er væntanleg í viku 14.
9. mars 2022
Skráða lyfið Norgesic 35 mg/450 mg er ófáanlegt hjá heildsölu, bæði 30 stk. og 100 stk. pakkningar. Lyfið er væntanlegt aftur í 30 stk. pakkningum þann 28. mars nk. Óvíst er hvenær 100 stk. pakkning kemur aftur á lager.
Undanþágulyf sem útvegað hafði verið fyrr á árinu er einnig ófáanlegt.
Ráð til lyfjanotenda:
Enn eru til einhverjar birgðir í apótekum. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.