Parkódín 500 mg/10 mg

Skráða lyfið Parkódín er fáanlegt aftur.

5. janúar 2024

Skráða lyfið Parkódín er nú fáanlegt aftur.

4. janúar 2024

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Parkódín í undanþágulyfið Co-Codamol til 5. janúar 2024.

21. desember 2023

Vegna skorts á skráða lyfinu Parkódín 500 mg/10 mg hefur verið útvegað undanþágulyfið Co-Codamol 500 mg/ 8 mg. Lyfið er fáanlegt hjá heildsölunni Parlogis.

Lyfjastofnun heimilar, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Parkódín 500 mg/10 mg í eftirfarandi undanþágulyf í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Co-Codamol 500 mg/8 mg hylki vnr. 995889.

Heimild til að breyta lyfjaávísun yfir í undanþágulyfið gildir til 3.janúar 2024.

Lyfjastofnun vekur athygli á að undanþágulyfið Co-Codamol innheldur 8 mg af kódeini á meðan skráða lyfið Parkódín inniheldur 10 mg af kódeini.

Undanþágulyfið er í breskum pakkningum og markaðsleyfihafi lyfsins er Custom Healthcare Limited.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi og innihaldi ekki sama magn kódeins þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

5. desember 2023

Allar pakkningastærðir af skráða lyfinu Parkódín eru ófáanlegar. Lyfið er ekki væntanlegt aftur til landsins fyrr en seinni hluta þessa mánaðar.

Heildsalan er að vinna í því að útvega undanþágulyf og verður fréttin uppfærð þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.

Síðast uppfært: 5. janúar 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat