Parkódín Forte 500 mg/30 mg filmuhúðuð tafla

Skráða lyfið Parkódín Forte 500 mg/30 mg filmuhúðuð tafla er fáanlegt aftur.

15. september 2023

Skráða lyfið Parkódín Forte er nú fáanlegt aftur í öllum pakkningastærðum nema 100 stk. pakkningu.

6. september 2023

Undanþágulyfið Co-Dafalgan 530 mg er ófáanlegt hjá heildsölu en ný sending er væntanleg á næstu dögum.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Parkódín Forte 500 mg/30 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 983371 Co-Dafalgan 530 mg filmuhúðaðar töflur 40 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Parkódín Forte yfir í undanþágulyfið Co-Dafalgan gildir til 20. september 2023.

Undanþágulyfið er í svissneskum pakkningum og markaðsleyfishafi lyfsins er UPSA Switzerland AG. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

30. ágúst 2023

Allar pakkningastærðir af skráða lyfinu Parkódín Forte 500 mg/30 mg filmuhúðuð tafla eru ófáanlegar hjá heildsölu.

Undanþágulyfið Co-Dafalgan 530 mg er fáanlegt hjá heildsölu.

Ráð til lyfjanotenda:

Mögulega eru ennþá birgðir í apótekum. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.

Síðast uppfært: 15. september 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat