Parkódín Forte 500 mg/30 mg

Skráða lyfið Parkódín Forte er fáanlegt aftur.

5. janúar 2024

Skráða lyfið Parkódín Forte 500 mg/30 mg er nú fáanlegt aftur í 40 stk. og 100 stk. pakkningum.

4. janúar 2024

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Parkódín Forte í undanþágulyfið Co-Dafalgan til 5. janúar 2024.

21. desember 2023

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Parkódín Forte í undanþágulyfið Co-Dafalgan til 3. janúar 2024.

14. desember 2023

Skráða lyfið Parkódín Forte er væntanlegt aftur í kringum áramót.

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Parkódín Forte í undanþágulyfið Co-Dafalgan til 1. janúar 2024.

5. desember 2023

Skráða lyfið Parkódín Forte er ófáanlegt og er ekki væntanlegt aftur til landsins fyrr en seinni hluta þessa mánaðar.

Undanþágulyfið Co-Dafalgan 530 mg er fáanlegt hjá heildsölu.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Parkódín Forte 500 mg/30 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 983371 Co-Dafalgan 530 mg filmuhúðaðar töflur 40 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Parkódín Forte yfir í undanþágulyfið Co-Dafalgan gildir til 15. desember 2023.

Undanþágulyfið er í svissneskum pakkningum og markaðsleyfishafi lyfsins er UPSA Switzerland AG. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 5. janúar 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat