22. desember 2021
Samkvæmt nýjum upplýsingum frá umboðsaðila Phenergan verður lyfið ekki afskráð. Phenergan hefur verið flutt til nýs markaðsleyfishafa en verður áfram skráð á nýju ári.
15. nóvember 2021
Lyfin Phenergan 25 mg f.h. töflur og samheitalyfið Prometazin Actavis 25 mg f.h. töflur eru nú ófáanleg hjá heildsölu. Phenergan 25 mg er væntanlegt aftur á lager þann 3. desember en lyfið verður afskráð um áramótin. Prometazin Actavis 25 mg er væntanlegt síðar í desember.
Ráð til lyfjanotenda:
Ef nauðsynlegt reynist að stöðva eða skipta um meðferð á meðan lyfin eru ófáanleg skal það gert í samráði við lækni.
Ráð til lækna og lyfjafræðinga:
Önnur lyf með sambærilega ábendingu eru fáanleg.