Rivotril 0,5 mg

Skráða lyfið Rivotril 0,5 mg er fáanlegt.

10. ágúst 2023

Skráða lyfið Rivotril 0,5 mg er nú fáanlegt hjá heildsölu.

04. ágúst 2023

Skráða lyfið Rivotril 0,5 mg kemur aftur í sölu um miðja næstu viku.

Vegna skorts á skráða lyfinu framlengir Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Rivotril 0,5 mg í undanþágulyfin Clonazepam 0,5 mg og Rivotril 0,5 mg til 9. ágúst 2023.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins

20. júlí 2023

Vegna áframhaldandi skorts á skráða lyfinu framlengir Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Rivotril 0,5 mg í undanþágulyfin Clonazepam 0,5 mg og Rivotríl 0,5 mg 4. ágúst 2023.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

13. júlí 2023

Skráða lyfið Rivotril 0,5 mg er enn ófáanlegt.

Lyfjastofnun framlengir, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun fyrir skráð lyf í undanþágulyfið Rivotril ásamt því að veitt er heimild til þess að breyta lyfjaávísun í undanþágulyfið Clonazepam 0,5 mg.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir skráða lyfið Rivotril 0,5 mg yfir í eftirfarandi undanþágulyf gildir til 20. júlí 2023:

  • Vnr. 993859 Rivotril 0,5 mg 150 stk.
  • Vnr. 993403 Clonazepam 0,5 mg 30 stk.

Undanþágulyfið Clonazepam er í pólskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Tarchomińskie Zakłady Farmaceutyczne “Polfa” Spółka Akcyjna. Heildsalan Distica sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

5. júlí 2023

Skráða lyfið Rivotril 0,5 mg hefur verið ófáanlegt síðan í lok síðasta árs. Undanþágulyfin Rivotril 0,5 mg (vnr. 993859) og Clonazepam 0,5 mg (vnr. 993403) eru fáanleg.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir skráða lyfið Rivotril 0,5 mg 150 stk. í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

Vnr. 993859 Rivotril 0,5 mg 150 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir skráð Rivotril yfir í undanþágulyfið Rivotril gildir til 11. júlí 2023.

Undanþágulyfið er í norskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins CHEPLAPHARM Arzneimittel GmbH. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 10. ágúst 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat