14. október
Skráða lyfið Sotalol Mylan 80 mg er nú fáanlegt aftur.
14. september
Ný sending af undanþágulyfinu Sotalol 40 mg 28 stk. töflum er komin til landsins og fáanleg í heildsölu.
29. ágúst
Skráða lyfið Sotalol Mylan 40 mg og 80 mg töflur er ófáanlegt hjá heildsala. Sendingin sem kom af undanþágulyfinu Sotalol 40 mg 28 stk. vnr. 990269 í síðustu viku seldist upp á tveimur dögum. Vonast er til að næsta sending verði komin í sölu hjá heildasala fyrir vikulok.
Soltalol Mylan 80 mg er væntanlegt til landsins um miðjan september en Sotalol 40 mg er ekki væntanlegt fyrr en í janúar 2023.