31. október 2022
Skráða lyfið Spectracillin er nú fáanlegt aftur.
20. október 2022
Tafir urðu á sendingu af Spectracillin 875/125 mg en lyfið er væntanlegt í sölu í næstu viku (viku 43).
7. október 2022
Spectracillin 875/125 mg er nú ófáanlegt hjá heildsölu. Lyfið er væntanlegt aftur um miðjan október. Lyfið Amoxin Comp 875/125 mg, sem inniheldur sama innihaldsefni, er einnig ófáanlegt og ekki væntanlegt fyrr en í janúar 2023. Því er ekkert sambærilegt skráð lyf í sama styrkleika fáanlegt.
Ráð til lyfjanotenda:
Mögulega eru til birgðir í apótekum, lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.