26. febrúar 2021
Eftirfarandi pakkningar eru nú fáanlegar hjá heildsölu:
- Stesolid 5 mg 50 stk.
- Stesolid 5 mg 100 stk.
- Stesolid 2 mg 100 stk.
19. febrúar 2021
Skráða lyfið Stesolid 5 mg 25 stk. pakkningin er komin og fáanleg hjá heildsölu.
Eftirfarandi pakkningar eru væntanlegar í sölu hjá heildsala um miðja næstu viku:
- Stesolid 5 mg 50 stk.
- Stesolid 5 mg 100 stk.
- Stesolid 2 mg 100 stk.
25. janúar 2021
Undanþágulyfin Diazepam 2 og 5 mg eru nú aftur fáanleg hjá heildsölu.
Frekari tafir hafa orðið á komu Stesolids en fyrsta pakkningin sem er væntanleg (5 mg 25 stk.) kemur til landsins 9. febrúar.
19. janúar 2021
Enn frekari tafir eru á komutíma á undanþágulyfjunum Diazepam 5mg og Diazepam 2mg töflum. Óvíst er hvenær lyfin eru væntanleg aftur til heildsala.
Ráð til lyfjanotenda:
Ef nauðsynlegt reynist að stöðva eða skipta um lyfjameðferð er mikilvægt að það sé gert í samráði við lækni.
18. janúar 2021
Frekari töf hafa orðið á komu lyfsins til landsins og eru lyfin ekki væntanleg fyrr enn byrjun febrúar.
Undanþágulyfin Diazepam 5 mg og Diazepam 2 mg eru einnig ófáanleg hjá heildsala en verið er vinna í því að fá meiri birgðir til landsins. Vonast er til að undanþágulyfin verði komin til heildsölu á föstudaginn.
Ráð til lyfjanotenda:
Enn eru til einhverjar birgðir af Diazepam 2 mg töflum í apótekum. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér í apótek og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi. Ef nauðsynlegt reynist að stöðva eða skipta um lyfjameðferð er mikilvægt að það sé gert í samráði við lækni.
5. nóvember 2020
Til þess að bregðast við skorti á Stesolid 5 mg og 2 mg, hefur heildsalan Parlogis útvegað eftirfarandi undanþágulyf sem eru fáanleg og birt í undanþágulyfjaverðskrá;
- Vnr. 980335 Diazepam 5mg 28 töflur
- Vnr. 980343 Diazepam 2mg 28 töflur
9. október 2020
Allar pakkningastærðir af Stesolid 5 mg og 2 mg eru ófáanlegar. Lyfið er ekki væntanlegt aftur fyrr en í lok desember 2020/ byrjun janúar 2021.
Ráð til lyfjanotenda:
Enn eru til birgðir af lyfjunum í apótekum landsins. Lyfjanotendum er bent á að hringja á undan sér í apótek og kanna hvort lyfið sé fáanlegt í viðkomandi apóteki. Listi yfir apótek á Íslandi.
Ef nauðsynlegt reynist að stöðva eða skipta um lyfjameðferð er mikilvægt að það sé gert í samráði við lækni.
Ráð til lækna:
Undanþágulyfið Diazepam 2 mg 28 stk. töflur (vnr.980343) er fáanlegt hjá heildsala með fyrningu 30.11.2020. Unnið er að því að útvega meira af Diazepam 2 mg og 5 mg með betri fyrningu.
Lyfjastofnun minnir á að almennt gildir að óskráðum lyfjum fylgja engar upplýsingar eða áletranir á íslensku og upplýsingagjöf lækna til sjúklinga er því enn mikilvægari en venjulega.