Suboxone tungurótartöflur

Suboxone tungurótartöflur eru ófáanlegar, lyfið var tekið af markaði 1. janúar 2026 sl.

29. janúar 2026

Báðar pakkningar af lyfinu Suboxone tungurótartöflum eru ófáanlegar hjá heildsala, þær eru: 2,5 mg, 28 stk. og 10 mg, 28 stk. heildsali Suboxone er Distica, umboðsaðili er Vistor.

Ástæður þess að Suboxone er ófáanlegt

 Markaðsleyfishafi lyfsins, Indivor, hefur ákveðið að taka lyfið af markaði í þó nokkrum löndum  Evrópu. Lyfið fór af markaði hér á landi 1. janúar 2026, markaðsleyfi lyfsins hefur verið fellt niður.

Í frétt EURACTIVE má t.d. lesa um afskráningu lyfsins í Svíþjóð. EURACTIVE er Evrópsk frétta- og upplýsingavefmiðstöð sem einbeitir sér að stefnumálum og pólitík Evrópusambandsins.

Ráð til ávísandi lækna og lyfjafræðinga í apótekum

Frá 1. janúar 2026 hefur ekki verið hægt að ávísa lyfinu í ávísanakerfum lækna.

1. Afgreiðsla lyfseðla sem gefnir voru út fyrir 1. janúar sl.- Apótek geta afgreitt lyfseðla sem gefnir voru út fyrir þann tíma í allt að þrjá mánuði.

 Heildsalan Distica hefur útvegað undanþágulyfið Buprenorfina + Naloxona með markaðsleyfi í Portúgal. Um er að ræða tvo styrkleika lyfsins 2,5 mg, 28 stk. og 10 mg 28 stk, vörunúmer 961427 og 965086.  

Lyfjastofnun hefur heimilað lyfjafræðingum að breyta lyfjaávísun á Suboxone yfir í undanþágulyfið. Mikilvægt er að lyfjafræðingar í apótekum upplýsi lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi og að skv. íslenskum kröfum ætti lyfið að vera merkt rauðum varúðarþríhyrningi.  

Heimildin gildir til 1. mars 2026.  Þessi ákvörðun er tekin til þess að draga úr álagi á heilbrigðiskerfið, þ.e. að lyfjanotendur með gilda lyfjaávísun á Suboxone þurfi ekki að verða sér úti um nýja lyfjaávísun á undanþágulyfið.

2. Lyfjaávísanir gefnar út eftir 1. janúar 2026 - ávísa þarf undanþágulyfinu.

Lyfjastofnun vinnur að því í samstarfi við lyfjafyrirtæki að útvega annað sambærilegt markaðsett lyf.

Hvaða leiðbeiningar eru í gildi um brottfall

Brottfall lyfja af markaði getur valdið verulegum óþægindum.

Nýverið gaf Lyfjastofnun út frétt um mikilvægi þess að tryggja framboð lyfja, hér. Fréttin byggir á leiðbeiningum Lyfjastofnunar til umboðsaðila vegna niðurfellingar markaðsleyfa og brottfalls úr lyfjaskrám má finna hér.

16. janúar 2026

Báðar pakkningar af markaðsetta lyfinu Suboxone tungurótartöflum eru ófáanlegar hjá heildsala. Ástæður skortsins eru ekki sér íslenskar en lyfið er ófáanlegt víða í Evrópu, þar sem framleiðandi hefur ákveðið að taka lyfið af markaði í þó nokkrum löndum í Evrópu.

Heildsalan Distica mun útvega undanþágulyfið Buprenofina + Naloxona eins fljótt og hægt er.

Síðast uppfært: 29. janúar 2026
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat