Toradol 30 mg/ml

Markaðssetta lyfið Toradol 30 mg/ml er ófáanlegt.

20. janúar 2025

Vegna áframhaldandi skorts á markaðsetta lyfinu Toradol, framlengir Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir markaðssetta lyfið Toradol í neðangreind undanþágulyf:

  • Vnr. 995839 Toradol 30 mg/ml stl. Lyfið er í sænskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Pharmanovia.
  • Vnr. 998544 Tora-Dol 30 mg/ml stl. 1 ml x 3 lykjur. Lyfið er í ítölskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Recordati insustria Chimica e Farmaceutica S.p.A.
  • Vnr. 998544 Tora-Dol 30 mg/ml stl. 1 ml x 5 lykjur. Lyfið er í svissneskum umbúðim og er markaðselyfishafi lyfsins er Atnahs Pharma Switzerland AG, Zug.

Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfjunum.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Toradol í samnefnd undanþágulyf gildir til 4. febrúar 2025.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi og sé í erlendum pakkningum þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins. 

5. desember 2024

Nýtt undanþágulyf hefur verið útvegað vegna skorts á markaðssetta lyfinu Toradol:

  • Vnr. 998544 Tora-Dol 30 mg/ml stl. 1 ml x 3 lykjur

Neðangreint heimild lyfjafræðinga til að breyta ávísun fyrir markaðssett lyf í undanþágulyf gildir einnig fyrir undanþágulyfið Tora-Dol.

Undanþágulyfið Tora-Dol er í ítölskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Recordati insustria Chimica e Farmaceutica S.p.A. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Toradol í undanþágulyfin Toradol og Tora-Dol gildir til 7. janúar 2025.

2. desember 2024

Með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, framlengir Lyfjastofnun heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir markaðssetta lyfið Toradol í undanþágulyf með sama heiti til 7. janúar 2025.

6. nóvember 2024

Vegna skorts á skráða lyfinu Toradol 30 mg/ml stl. heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Toradol í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 995839 Toradol 30 mg/ml stl

Undanþágulyfið Toradol er í sænskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins Pharmanovia. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Toradol í samnefnt undanþágulyf gildir til 2. desember 2024.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi og sé í erlendum pakkningum þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 20. janúar 2025
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat