Visanne 2 mg

Markaðssetta lyfið Visanne 2 mg er fáanlegt.

3. júlí 2024

Skráða lyfið Visanne 2 mg 84 stk. töflur er fáanlegt aftur hjá heildsölu.

5. júní 2024

Markaðssetta lyfið Visanne 2 mg töflur 84 stk. er ófáanlegt. Undanþágulyfið Diemono 2 mg filmuhúðaðar töflur 84 stk. hefur verið útvegað.

Vegna skorts á skráða lyfinu heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Visanne 2 mg í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 997421 Diemono 2 mg fh.töflur 84 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Visanne 2 mg í ofangreint undanþágulyf gildir til 2. júlí 2024.

Undanþágulyfið er í þýskum pakkningum og markaðsleyfishafi lyfsins er Mibe GmbH Arzneimittel. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 3. júlí 2024
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat