Wellbutrin Retard 150 mg og 300 mg

Wellbutrin Retard er nú ófáanlegt bæði í 150 mg og 300 mg styrkleika. Wellbutrin Retard (Lyfjaver) er einnig ófáanlegt. Undanþágulyf hefur verið útvegað.

19. maí 2022

Skráða lyfið Wellbutrin Retard er nú ófáanlegt bæði í 150 mg og 300 mg styrkleika. Wellbutrin Retard (Lyfjaver) er einnig ófáanlegt.

Ráð til lækna og lyfjafræðinga:

Undanþágulyfið Wellbutrin XR 150 mg (vnr. 988438) verður fáanlegt hjá heildsölunni Parlogis.

Vegna skorts á skráðu lyfjunum Wellbutrin Retard og Wellbutrin Retard (Lyfjaver) töflum heimilar Lyfjastofnun með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020 lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Wellbutrin Retard eða Wellbutrin Retard (Lyfjaver) í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 988438 Wellbutrin XR 150 mg 30 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Wellbutrin Retard eða Wellbutrin Retard (Lyfjaver) yfir í Wellbutrin XR gildir til 6. júní 2022.

Tilmæli eru til lyfjafræðinga að upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins GSK. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Síðast uppfært: 19. maí 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat