Wellbutrin Retard 150 mg/Wellbutrin Retard (Lyfjaver) 150 mg

Lyfin Wellbutrin Retard 150 mg og Wellbutrin Retard (Lyfjaver) 150 mg eru ófáanleg. Undanþágulyf hefur verið útvegað.

29. júní 2022

Skráða lyfið Wellbutrin Retard 150 mg (vnr. 080542) er nú fáanlegt aftur hjá heildsölu.

10. júní 2022

Skráðu lyfin Wellbutrin Retard 150 mg og Wellbutrin Retard (Lyfjaver) 150 mg eru ófáanleg hjá heildsölu.

Ráð til lækna og lyfjafræðinga:

Enn eru einhverjar pakkningar af lyfinu fáanlegar í apótekum. Undanþágulyfið Wellbutrin XR 150 mg (vnr. 988438) verður fáanlegt hjá heildsölunni Parlogis á næstu dögum.

Vegna skorts á skráðu lyfjunum Wellbutrin Retard og Wellbutrin Retard (Lyfjaver) töflum heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Wellbutrin Retard eða Wellbutrin Retard (Lyfjaver) í eftirfarandi undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á:

  • Vnr. 988438 Wellbutrin XR 150 mg 30 stk.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Wellbutrin Retard eða Wellbutrin Retard (Lyfjaver) yfir í Wellbutrin XR gildir til 4. júlí 2022.

Tilmæli eru til lyfjafræðinga að upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins GSK. Heildsalan Parlogis sér um dreifingu á lyfinu.

Síðast uppfært: 29. júní 2022
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat