Zitromax 500 mg og Azithromycin STADA 500 mg

Skráða lyfið Zitromax 500 mg 2 stk. pakkning er fáanleg

2. febrúar 2023

Skráða lyfið Zitromax 500 mg 2 stk. pakkningin er fáanleg aftur hjá heildsölu, 3 stk. pakkningin er væntanleg í sölu á morgun.

26. janúar 2023

Vegna tafa á komu lyfsins Zitromax 500 mg taflna framlengir Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, heimild lyfjafræðinga í lyfjabúðum til að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Zitromax 500 mg og Azithromycin STADA 500 mg í neðangreint undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á til 1. febrúar 2023.

6. janúar 2023

Skráðu lyfin Zitromax 500 mg töflur og Azithromycin STADA 500 mg töflur eru ófáanleg. Zitromax er væntanlegt aftur í viku 4 en komutími Azithromycin STADA er óviss.

Undanþágulyf hefur verið útvegað og er fáanlegt hjá heildsölu:

  • Azithromycin 500 mg 3 stk. (vnr. 991671)

Vegna skort á skráðu lyfjunum heimilar Lyfjastofnun, með vísan í 52. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, lyfjafræðingum í lyfjabúðum að breyta lyfjaávísun læknis fyrir Zitromax 500 mg og Azithromycin STADA 500 mg í ofangreint undanþágulyf, í sambærilegu magni og lyfjaávísun hljóðar upp á.

Heimild til að breyta lyfjaávísun fyrir Zitromax 500 mg og Azithromycin STADA 500 mg yfir í undanþágulyfið Azithromycin 500 mg gildir til 26. janúar 2023.

Undanþágulyfið er í þýskum umbúðum og er markaðsleyfishafi lyfsins HEC Pharm GmbH.

Lyfjafræðingar skulu upplýsa lyfjanotendur um að lyfið hafi ekki íslenskt markaðsleyfi þegar þeir nýta þessa heimild, ásamt því að gera grein fyrir mögulegum aukaverkunum og öðrum upplýsingum sem kunna að vera nauðsynlegar við notkun lyfsins.

Síðast uppfært: 2. febrúar 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat