02. Hvernig á ég að losa mig við gömul lyf og lyf sem ég er hætt/ur að nota?

Öruggasta leiðin til að losa sig við gömul lyf og lyf sem er ekki lengur þörf fyrir er að skila þeim í apótek til eyðingar. Ekki má henda lyfjum í rusl, vask eða klósett vegna umhverfisáhrifa.

Þeim hluta umbúðanna sem lyfin hafa snert þ.e. innri umbúðir skal einnig skila til apóteka til eyðingar en ytri umbúðir, svo sem pappakarton eða plastkassar skal flokka eins og annað sorp.

Sprautum og sprautunálum skal skilað í apótek í lokuðum ílátum til að koma í veg fyrir að starfsmenn skaði sig á oddhvössum hlutum. Hægt er að fá sérstök nálabox í apótekum.

(20. 10. 2017)

Síðast uppfært: 26. maí 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat