07. Hversu lengi er Lyfjastofnun að afgreiða beiðnir um undanþágulyf sem berast rafrænt?

Umsóknir um undanþágulyf eru afgreiddar alla almenna vinnudaga. Ef lyfseðill er sendur fyrir kl. 14 er almenna reglan sú að lyfseðillinn birtist í gáttinni sama dag eða að læknir fær skilaboð í Sögukerfið um að umsókninni hafi verið hafnað. Ef seðlar eru sendir eftir kl. 14 eru þeir afgreiddir snemma næsta dag (eða eftir helgi á föstudögum). Hið sama gildir um seðla sem sendir eru um helgar eða á öðrum frídögum. Þeir eru þá afgreiddir snemma næsta almenna vinnudag. Í einstaka tilfellum getur þurft að skoða beiðnir sérstaklega og afgreiðsla þeirra því tekið lengri tíma.

(30.12.2019)

Síðast uppfært: 29. október 2020
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat