Rauði varúðarþríhyrningurinn er hluti af sérkröfum fyrir Ísland (sjá undir 'Blue-box' requirements hér) um viðbótaráletranir fyrir umbúðir lyfja. Lyf sem geta dregið úr hæfni til aksturs og notkunar véla eiga að vera merkt með varúðarþríhyrningi. Þessi viðbótaráletrunarkröfu má rekja til þess tíma þar sem sameiginleg regla þess efnis gilti á öllum Norðurlöndunum en staðan hefur breyst á síðastliðnum árum. Rauði varúðarþríhyrningurinn er notaður á pakkningar í Danmörku, Noregi og Finnlandi. Í Danmörku og Noregi eru til listar yfir virk efni lyfja sem bera eiga varúðarþríhyrning, en þeir listar eru ekki samhljóða. Rauði þríhyrningurinn er ekki notaður lengur í Svíþjóð.
Þessar mismunandi kröfur milli Norðurlandanna hafa skapað misræmi fyrir Ísland. Lyf á íslenskum markaði eru mjög oft í fjöllanda pakkningum vegna smæðar markaðarins og deilir Ísland oftar en ekki pakkningum með einhverju Norðurlandanna. Afleiðingin var sú að lyf markaðssett á Íslandi sem geta haft áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla voru ekki öll merkt með varúðarþríhyrningi og fór það eftir því með hverju Norðurlandanna Ísland deildi pakkningu. Vegna þessa hefur verið skerpt á verklagi og er markaðsleyfishöfum nú skylt að ganga úr skugga um að ef í lyfjatextum kemur fram að lyf geti haft áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla á pakkningin að vera merkt með rauðum varúðarþríhyrningi.
Upplýsingar um áhrif lyfja hvað varðar akstur og notkun véla eru ávallt tilgreind í fylgiseðli hvers lyfs og því afar mikilvægt að lesa fylgiseðilinn.
(13.10.2025)