Starfshópur skipaður til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að gera tillögur um aðgerðir til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja. Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum til ráðherra fyrir 1. maí næstkomandi.

Í frétt á vef velferðarráðuneytisins kemur fram að í erindisbréfi starfshópsins komi fram að vinna hópsins skuli taka tillit til þeirra sem nauðsynlega þurfa á þessum lyfjum að halda þannig að tillögur að aðgerðum beinist ekki að þeim sem lyfin koma að gagni.

Birgir Jakobsson landlæknir og verðandi aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra er formaður starfshópsins. Aðrir nefndarmenn starfshópsins eru:

  • Aðalsteinn Jens Loftsson, lyfjafræðingur hjá Lyfju
  • Áslaug Einarsdóttir, settur skrifstofustjóri í velferðaráðuneytinu
  • Einar Magnússon, lyfjamálastjóri í velferðarráðuneytinu
  • Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar
  • Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri SÁÁ
  • Þröstur Emilsson, formaður ADHD samtakanna
  • Þórgunnur Ársælsdóttir, formaður Geðlæknafélags Íslands

Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar

Síðast uppfært: 12. febrúar 2018
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat