Til markaðsleyfishafa – Nýjar íslenskar þýðingar á nýjum og/eða eldri staðalheitum

Drög að nýjum og/eða breyttum íslenskum þýðingum á staðalheitum fyrir lyfjaform/pakkningar/íkomuleiðir lyfja sem evrópska lyfjaskráin (EDQM) hefur samþykkt liggja nú fyrir. Um er að ræða tíu ný staðalheiti, eitt nýtt heiti sem ekki á að nota í textum, og fjórar leiðréttingar á eldri þýðingum. Í einhverjum tilfellum eru þetta ný samsett staðalheiti (combined terms) þar sem skeytt er saman tveimur eða fleiri áður samþykktum þýðingum lyfjaforma/íkomuleiða/umbúða.

Áður en staðalheiti verða samþykkt og send EDQM til birtingar er hagsmunaaðilum boðið að senda Lyfjastofnun athugasemdir við þýðingarnar, sjá meðfylgjandi skjal . Athugasemdir ásamt greinargóðum útskýringum, og ef við á nýjum tillögum að þýðingum, leiðréttingum eða ábendingum skulu sendar í því skjali sem er til umsagnar, þ.e. í dálkinn lengst til hægri. Þær skulu berast á netfangið [email protected] auðkennt „Athugasemdir við staðalheiti 2019040266, eigi síðar en 29. apríl n.k. Athugið að útskýra vel athugasemdir svo ekki fari á milli mála hvað átt er við og af hverju athugasemdin er gerð.

Síðast uppfært: 12. apríl 2019
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat