Til markaðsleyfishafa og umboðsmanna þeirra

Lyfið Doloproct
(flucortolonum) endaþarmsstílar hefur verið ófáanlegt hjá heildsala um tíma vegna flutnings á markaðsleyfi. Skráða lyfið mun ekki verða fáanlegt aftur. Lyfið
er notað sem einkennabundin meðferð við
verkjum, bólgu, sviða og kláða í tengslum við gyllinæð, endaþarmsrifur og
endaþarmskláða. Doloproct er eina lyfið sem hefur verið á markaði um nokkurt
skeið með þessa ábendingu sem og í umræddu lyfjaformi.

Salan á Doloproct endarmsstílum
10 stk árið 2018 var 11.745 pakkningar.

Lyfjastofnun
hvetur markaðsleyfishafa og umboðsaðila að skoða hvort þeir eigi endaþarmsstíla
með ofangreinda ábendingu sem hægt er að markaðssetja. Mikil eftirspurn er
eftir slíku lyfi, og brýnt er að markaðsleyfishafar og umboðsmenn þeirra komi
til móts við eftirspurnina og bjóði þetta lyf fyrir íslenska notendur.

Óskráð lyf er
fáanlegt eins og stendur en því þarf að ávísa á undanþágu og framboð ekki tryggt. Mikilvægt er
að tryggja stöðugt framboð lyfja og fækka lyfjum sem lenda í undanþágukerfinu.

Hafi lyf nú
þegar íslenskt markaðsleyfi er bent á þann möguleika að markaðssetja lyfið á grundvelli
viðurkennds hámarksverðs ásamt því að fyrir liggi íslenskir lyfjatextar.

Hafi
lyf ekki íslenskt markaðsleyfi er bent á núlldaga skráningarferli sem komið var á til að fjölga markaðssettum lyfjum
á Íslandi. 

Síðast uppfært: 17. júlí 2019
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat