Lyfjastofnun hefur veitt heimild fyrir sölu Esopram 20 mg filmuhúðuð tafla í norskum pakkningum með öðru heiti og norrænu vörunúmeri en fram kemur í lyfjaskrám. Í lyfjaskrám heitir lyfið Esopram og hefur norræna vörunúmerið 04 81 66.
Tímabundin undanþága nær til:
- Escitalopram Actavis (NO) 20 mg filmuhúðuð tafla 100 stk. Vnr 45 96 12
Sem fyrr segir eru pakkningar lyfsins norskar en lyfið verður selt með íslenskri áletrun á ytri umbúðum (límmiða) ásamt íslenskum fylgiseðli.