Stoðskrá lyfja

Lyfjastofnun hefur hafið útgáfu stoðskrár lyfja sem ætlað er að stuðla að skilvirkri og öryggri lyfjanotkun.

Stoðskráin er gefin út á XML (Extensible Markup Language) formi. Uppsetning XML-skrár er að mörgu leyti lík HTML-skrá nema hvað hún notar sínar eigin tegundir forsniðstákna til þess að skilgreina form og hluti. Hægt er að hugsa sér XML-skrá sem eins konar textagagnagrunn. Til þess að geta lesið hana þarf að notast við ritil sem styður XML.

Upplýsingarnar í stoðskránni eru fyrst og fremst sniðnar að þörfum heilbrigðisstarfsfólks og starfsfólks apóteka sem geta nýtt upplýsingar úr stoðskránni t.d. við ávísun lyfja, afgreiðslu þeirra og/eða lyfjadreifingu. Stoðskráin er aðgengileg öllum.

Sækja nýjustu útgáfu stoðskrárinnar (Athugið að skjalið er yfir 50 MB)

Stoðskráin var síðast uppfærð 8.12.2023 (desember 2023 verðskrá)

Hvað býður stoðskráin upp á?

Stoðskráin inniheldur upplýsingar um þau lyf sem eru fáanleg á Íslandi. Bæði lyf sem eru markaðssett en einnig óskráð lyf sem Lyfjastofnun hefur samþykkt verð fyrir. Í skránni eru einnig upplýsingar um hvaða pakkningar eru fáanlegar og hvaða lyfi þær tilheyra. Sömuleiðis er hægt að sjá minnstu einingu pakkningar í stoðskránni. Heilbrigðisstofnanir gætu t.d. nýtt skrána í starfi sínu t.d. við ávísanir og lyfjagjöf eða sem verkfæri við birgðastýringar og pantanagerð.

Langtímamarkmið að bæta stoðskrána

Langtímamarkmið Lyfjastofnunar er að bæta stoðskrána enn frekar. Stefnt er að því að stoðskráin endurspegli raunstöðu lyfja á markaði hérlendis hverju sinni og ákveðið hefur verið að uppfærslur verði mánaðarlega. Áfram verður unnið að því að bæta við ýmsum möguleikum fyrir notendur t.d. upplýsingaleit um milliverkanir lyfja og ávísanareglur.

Nánar um stoðskránna

Stoðskráin er birt til að gefa áhugasömum tækifæri til að prófa upplýsingarnar í sínum hugbúnaði. Stoðskráin er gefin út á XML formi og því ekki háð ákveðnum hugbúnaði. Þannig gefst notendum möguleiki á að samkeyra upplýsingarnar við sín tölvukerfi. Stoðskráin er aðgengileg öllum.

Síðast uppfært: 8. desember 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat