Bréf til heilbrigðisstarfsmanna (DHPC) – Modiodal, Modafinil Bluefish og Aspendos

Markaðsleyfishafar sérlyfja sem innihalda modafinil hafa í
samráði við Lyfjastofnun Evrópu og Lyfjastofnun sent bréf
til heilbrigðisstarfsmanna
til þess að koma á framfæri nýjum
öryggisupplýsingum um lyfið.

Upplýsingarnar komu fram í kjölfar árlegrar skoðunar á
gögnum úr gagnagrunnum um notkun Nuvigil® og Provigil® á
meðgöngu í Bandaríkjunum.

Samkvæmt tilkynningum eftir markaðssetningu er grunur um að
notkun modafinils á meðgöngu valdi vansköpun fósturs, þ.á.m. á hjarta þess.

Modafinil á ekki að ávísa til þungaðra kvenna eða kvenna sem
geta orðið þungaðar.

Nánari upplýsingar er að finna í bréfinu,
og að auki má finna ítarlegar upplýsingar um Modiodal,
Modafinil
Bluefish
og Aspendos
í sérlyfjaskrá.

Yfirlit
yfir bréf til heilbrigðisstarfsmanna.

Síðast uppfært: 27. maí 2019
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat