COVID-19: Upplýsingasíða um bóluefnið COVID-19 Vaccine Moderna komin í loftið

SmPC, fylgiseðill og algengar spurningar um bóluefnið

Yfirfarnir og samþykktir lyfjatextar fyrir bóluefnið COVID-19 Vaccine Moderna hafa nú verið birtir á íslensku í kjölfar þess að bóluefnið hlaut íslenskt markaðsleyfi.

Vegna mikilvægi bóluefna í baráttunni við heimsfaraldur COVID-19 mun Lyfjastofnun halda úti sérstakri upplýsingasíðu fyrir hvert og eitt bóluefni sem veitt er íslenskt markaðsleyfi. Slík síða hefur nú verið birt fyrir COVID-19 Vaccine Moderna. Áður var einnig birt slík síða fyrir bóluefnið Comirnaty frá BioNTech/Pfizer.

Á nýju upplýsingasíðunni fyrir bóluefni Moderna má finna eftirfarandi upplýsingar:

  • Leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsfólk (Samantekt á eiginleikum lyfs / SmPC
  • Fylgiseði lyfsins
  • Algengar spurningar um bóluefnið
Síðast uppfært: 23. mars 2021
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat