Gleðilega hátíð

Hátíðarkveðja frá starfsfólki Lyfjastofnunar

Starfsfólk Lyfjastofnunar óskar viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar með þökkum fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.

Lyfjastofnun sendir ekki hefðbundin jólakort en ver í staðinn fjárhæð til góðgerðarmála sem starfsfólk stofnunarinnar velur. Í þetta sinn varð Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur fyrir valinu.

Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar verður með sama sniði og fyrri ár.

Opið verður alla almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma, en þó með þeirri undantekningu að stofnunin verður lokuð dagana 24. og 31. desember. Dagana 23. desember og 28. – 30. desember verður þó lágmarksþjónusta. Sjá nánari upplýsingar um opnunartíma og afgreiðslutakmarkanir yfir jól og áramót.

Síðast uppfært: 24. desember 2020
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat