Gleðilega hátíð

Hátíðarkveðja frá starfsfólki Lyfjastofnunar

Starfsfólk Lyfjastofnunar óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.

Eins og undanfarin ár styrkir Lyfjastofnun góðgerðarsamtök sem starfsfólk stofnunarinnar velur, í stað þess að senda hefðbundin jólakort. Að þessu sinni hlýtur Ljósið styrk stofnunarinnar, en Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem fengið hefur krabbamein, og aðstandendur þess.

Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar verður með sama sniði og fyrri ár. Opið verður alla almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma. Dagana 22.-29. desember verður lágmarksþjónusta.

Hefðbundin starfsemi hefst að nýju 2. janúar 2024

Síðast uppfært: 18. desember 2023
Var efnið hjálplegt Nei

Hvað þarf að laga?


LiveChat