Starfsfólk Lyfjastofnunar óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.
Eins og undanfarin ár styrkir Lyfjastofnun góðgerðarsamtök sem starfsfólk stofnunarinnar velur, í stað þess að senda hefðbundin jólakort. Að þessu sinni hlýtur Geðvernd styrk stofnunarinnar, en félagið vinnur að bættri geðheilsu ungra barna og fjölskyldna þeirra.

Opnunartími hjá Lyfjastofnun yfir hátíðarnar verður með sama sniði og fyrri ár. Opið verður alla almenna vinnudaga á venjulegum opnunartíma. Dagana 22. desember 2025 - 2. janúar 2026 verður lágmarksþjónusta.
Hefðbundin starfsemi hefst að nýju 5. janúar 2026
